smá hreyfing ...og hvað svo......

Nú er lag að skvetta hér inn nokkrum línum..... Lífið hjá mér er eitthvað svo einstaklega spennandi þessa dagana að ég má ekkert vera að því að blogga af neinu viti...... ekki að ég hafi bloggað svo mikið gáfulegt um dagana...Cool..og þó..Pinch.. Ég er óðum að komast inn í mitt nýja starf, en það hefur tekið sinn tíma enda er ég að skipta mér á milli þriggja deilda og þarf því að kynnast bæði sjúklingum og starfsfólki á öllum þessum stöðum.... fyrir manneskju með snert af félagsfælni..Whistling.. eins og ég virðist stundum þjást af.. þá tekur það ögn lengri tíma en ella...Woundering... en semsagt það er  rífandi gangur í vinnunni og alveg þrælskemmtilegt, margbreytileg verkefni ... alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi....W00t...

Hér heima hefur allt verið í hers höndum þar sem við, ég og Bóndinn ákváðum að skella upp nýrri eldhúsinnréttingu svona í takt við ástandið í þjóðfélaginu..Blush.. innréttingin er komin upp en húsið í sjálfu sér enn í lamasessi .Undecided.. hér á eftir að mála og græja..... alltaf eitthvað nýtt sem bætist við, við nánari athugun....Pinch.

Ég hef undanfarna mánuði verið á svolitlum bömmer yfir þeim aukakílóum sem fylgdu með í kaupunum þegar ég hætti að reykja og ákvað því í gær að taka á honum stóra mínum og skella mér í blak hér í sveitinni...Smile... það var rosalega gaman enda valinkunnur hópur sveitunga sem stundar þessa íþrótt af miklu kappi..... í dag sit ég í sófanum í litla húsinu mínu í sveitasælunni með gifsi upp á miðja kálfa....Frown.... Hver segir svo að íþróttir séu góðar fyrir fólk sem er rúmlega fermt..... afrakstur ævintýrsins í gær er semsagt rifin hásin.... en vissulega glatt sinni...Wink....ég þarf því að drattast með þetta gifsi næstu þrjár vikurnar.... og þið getið þá rétt ímyndað ykkur þau aukakíló sem verða búin að taka sér bólfestu á mjöðmunum eftir þann tíma..... I rest my case.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

heyrðu heyrðu - þú hefðir betur komið með mér í sundleikfimi!!

Annars er þetta blak eitthvað sem freistar mín ógurlega! Vantar ekki eina úr því þú ert úti?

Hrönn Sigurðardóttir, 13.11.2008 kl. 15:41

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sorrí! Æj aumingja stelpan að slasa þig svona.....

Hrönn Sigurðardóttir, 13.11.2008 kl. 15:42

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vitaskuld átti ég að byrja á fyrra kommentinu! Ég hef bara aldrei kunnað mig!

Hrönn Sigurðardóttir, 13.11.2008 kl. 15:42

4 Smámynd: JEG

Ææææjjjj já það er ekkert sniðugt að rjúka til á gamalsaldri og fara að stunda íþróttir.......ja allavega ekki hvað sem er sko   Farðu vel með þig og mundu bara að sleppa súkkulaðinu og snakkinu.  Nú er um að gera að naga gulrætur meðan þær eru nýjar. 

Kveðja úr Hrútósveitó   

JEG, 13.11.2008 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband