Verkaskipting... ;))

 Var að fá þennan sendan..og finnst hann nokkuð góður.... Tounge

 

Það var sólríkur morgunn í skóginum þegar bangsafjölskyldan reis úr rekkju einn daginn.

Bangsi litli tölti inn í eldhús, settist við morgunverðarborðið, leit ofaní litlu skálina sína og sá að hún var tóm. "Hver hefur borðað grautinn minn?" spurði hann, ámátlegum rómi.

Bangsapabbi leit ofan í stóru skálina sína og sá að hún var líka tóm.

"Hver hefur borðað grautinn minn?" urraði hann.

Bangsamamma leit upp frá eldhúsbekknum og sagði:

"Ó mæ god, hvað oft þurfum við að fara í gegnum þetta?

Bangsamamma vaknaði fyrst allra.

Bangsamamma vakti ykkur hina.

Bangsamamma hitaði kaffið.

Bangsamamma tæmdi uppþvottavélina og raðaði upp í skápa. Bangsamamma lagði á borðið. Bangsamamma hleypti kettinum út, tæmdi kattabakkann og gaf kisu að éta og drekka.

Bangsamamma fór út og sótti blaðið.

Og nú, þegar þið drattist loksins á fætur og parkerið ykkar súru trýnum við morgunverðarborðið...

hlustið vel, þetta segi ég bara eitt skipti í viðbót:

""ÉG ER EKKI BÚIN AÐ BÚA TIL HELVÍTIS GRAUTINN ENNÞÁ!!!!""


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahhaha já og svo sannur!!!

Hrönn Sigurðardóttir, 30.8.2007 kl. 14:42

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Dásamleg saga - og einmitt, mjög sönn. Upgrade your email with 1000's of cool animations

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.9.2007 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband