15.1.2008 | 22:11
Fönn, fönn.....
Sit heima í Kópavogi....... ég hafði hugsað mér að renna austur í sveitina eftir vinnu í dag...á dagskránni í kvöld var fundur hjá Þorrablótsnefndinni...... en svo tók skynsemin völdin og ég sá að það var ekkert vit í að æða austur í fannfergið.....
Bóndinn veðurtepptur í sveitasælunni...... komst ekki í bæinn í morgun sökum óveðurs...... já óveðurs....og það í Ásahrepp....... það eru undarlegir hlutir sem gerast á þessu nýja ári...... á dauða mínum átti ég von...... en óveður í Ásahreppi...ó nei... svoleiðis gerist ekki....og þó........ það var meira að segja rafmagnslaust í nánast allan dag og það gerist nú ekki á hverjum degi á Íslandi í dag að rafmagn fari af í margar klst vegna veðurs..........
Ég sé svo sem eitt jákætt við þessar hamfarir....... það er möguleiki að mýsnar...... (þessar sem búa frítt hjá okkur í sveitinni)......hafi frosið í hel í kuldanum...... og ég ætla bara að leyfa mér að vona það...... allavega þar til annað kemur í ljós.............
Athugasemdir
Hæ Fanney
Takk fyrir innlitið á mína síðu. Ég sé nú að þú ert ennþá að hlaupa, bara ekki á hefðbundnum hlaupabrautum en þess í stað um fjöll og fyrnindi. Hef sjálf látið öll hlaup eiga sig nema á eftir lestum og strætisvögnum.
Þær hafa lika komið sér frítt fyrir i minni sveit mýslurnar en ég hugga mig alltaf við að þar sem eru mýs eru örugglega ekki rottur.
Sendi þér ósk um að vera bloggvinur, - þú kíkir kannski á það.
Kveðja, Guðrún Árna
Guðrún Árnadóttir, 16.1.2008 kl. 10:11
Hér kyngdi niður þvílíku magni af snjó að elstu skátum á Eyrarbakka brá þannig að það var eins gott að þú lagðir ekki af stað austur!!
Hrönn Sigurðardóttir, 16.1.2008 kl. 10:20
...og snjóar enn....
Þú veist að fönn rímar við Hrönn?
lovjú
Hrönn Sigurðardóttir, 17.1.2008 kl. 09:08
Það stefnir í sólríkt og lyngt sumar, sem mun ekki bara standa í 2 mánuði heldur fjóra og hálfan: maí, júní, júlí, ágúst og fram í september. Svo hljóðar kindagarnaspádómur frá í haust. Veturinn á undan þessu rjómafroðusumri er eðli málsins samkvæmt, snjóþungur og doltið harður. Erum við ekki bara sáttar og góðar? Hrín við Hrönn og verður fönn, fönn - fönn - fönn og hratt flýgur tönn.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.1.2008 kl. 20:09
Um að gera að hrófla sér sem minnst í svona færð, þetta gengur yfir
Marta B Helgadóttir, 18.1.2008 kl. 00:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.