Í dag er ég...

lasin.... í gær var ég lasin..... í fyrradag var ég lasin....Frown.Angry.....Ég er orðin allveg hundleið á því að vera lasin..... Ég hef verið að velta því fyrir mér núna síðustu daga...Woundering.. Hvað er það sem gerir það að verkum að ég tek hverja flensuna á fætur annarri að mér og geri hana að minni...Undecided... ég hef ekki orðið svona oft veik síðan ég hætti  að reykja..... ég get svarið það.... 

Á morgun er dagskrá í Perlunni í tilefni Alþjóðlega Geðheilbrigðisdagsins sem er þann 10 okt.  margt skemmtilegt verður í boði  m.a hraðskákmót á vegum Vinjar.... ég verð bara að leggjast á bæn og vona að ég hafi heilsu til að sýna mig og sjá aðra á þessum merkisdegi ....... atsjú...... over and out...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Vanheilsa Fanneyjar: Ég bara skil þetta ekki, nýhamingjusöm bóndakonan alltaf með sýkingar. Sko: Andoxunarefni er það sem blívur fyrir konur á virðulegum aldri, það bústar ónæmiskerið. Og svo er það lýsi og kalk, zink og magnesíum. Amen. Hér talar hjúkrunarfræðingurinn.

Geð guma og sprunda: Glæsilega að 10. október staðið þetta árið. Verð í konuboði á morgun, en mæti á miðvikudaginn og hlakka til að hitta þig, m.a. Hér talar geðfræðingurinn og krónískur kleppari.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.10.2007 kl. 18:37

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Grænt te, grænt te, grænt te. Lýsi, kalk og kynlíf.....

Er ekki líkaminn bara að afeitra sig eftir langvarandi inntöku eiturefna? Það tekur á að verða hreystimenni.

Láttu þér batna og farðu vel með þig á meðan þú ert veik. Láttu Bóndann stjana við þig!

PS veit ekki hvar þú getur nálgast upplýsingar um iðjuþjálfastarfið. Dettur helst í hug heilsugæslustöðin....

Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2007 kl. 19:11

3 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Takk, takk stelpur mínar... tek eitt og annað til mín af þessum góðu ráðum.......

Hlakka til að hitta þig á miðvikudaginn frú Geðhjúkrunarfræðingur....

Hrönn mín veit hvaða iðjuþjálfi fékk stöðuna og hún er flott.... en það vantar kanski iðjuþjálfa fyrir fullorðna þarna á Selfossi ..... hvað veit ég.....kanski maður kanni málið.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 6.10.2007 kl. 21:32

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ó? Er búið að ráða!!!!!?

*heimskulegkona-kall*

Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2007 kl. 22:57

5 Smámynd: arnar valgeirsson

þú þolir bara ekki súrefnið í sveitinni stelpa. annars áttu auðvitað að mæta í perluna og getur td dansað með magadansmeyjunum! og ég skrái þig í mótið...

arnar valgeirsson, 7.10.2007 kl. 02:04

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Valgeir... ég ER magadansmeyjan......

Fanney Björg Karlsdóttir, 7.10.2007 kl. 12:06

7 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

heheh.... ég meinti að sjálfsögðu Arnar.... eins og þú sérð þá er ég með óráði

Fanney Björg Karlsdóttir, 7.10.2007 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband