12.2.2008 | 21:58
Líf eftir Þorrablót....






Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.2.2008 | 09:20
Það er allt á floti allsstaðar......
Hér, eins og sjálfsagt víða annarssaðar hefur veðrið gengið niður, en þetta var engin smá hvellur í gærkveldi, þrumur og eldingar, vindhraði upp á 30 m á sekundu og lemjandi rigning ofan á allt saman....
.. Vorum á þorrablótsæfingu fram eftir kvöldi og skemmtum okkur mjög vel við söng og almennan fíflagang eins og vani er upp til sveita..
..skillst mér......
......Þegar heim kom settumst við í rólegheitum og horfðum á Taggart....eða þannig..... ætlunin var sum sé að horfa á snillingin....... en engin veit sína ævi.......... hér fór allt á flot þannig að Taggart fór fyrir lítið og hér æddum við um allt með fötur og fægiskóflu og jusum vatni eins og okkur væri borgað fyrir það........
svei mér ef bæjarnafnið breytist ekki hér eftir úr Einholt ...í .....Flotholt.........það vill til að hér eru ekki rándýr parket á gólfum þannig að þetta sleppur fyrir horn....
...... en það er allveg sérlega huggulegt að enda daginn með að þurrka upp vatnselg ...innandyra..... og hefja svo næsta dag á því sama.....
....
Já.....sveitasælan tekur á sig margvíslegar myndir.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.2.2008 | 18:59
ófærð, ófærð og aftur ófærð......
Nú fer þetta að hætta að vera fyndið...... ég er veðurteppt í bænum...
...... var komin upp að Rauðavatni en þar stóð lögreglan með blikkandi ljós og alles og varnaði því að fólk héldi út í óvissuna..... það var allveg sama hvað við bárum okkur aumlega..." Við verðum að komast austur að gefa hrossunum "..
. eða .." það er þorrablótsæfing í kvöld....og við verðum að vera þar..."..
. allt kom fyrir ekki...... Hellisheiðin er lokuð og Þrengslin eru lokuð ...og verða lokuð allavega næstu klukkustundirnar......þannig að það er lítið annað hægt að gera en að hreiðra um sig í Kópavoginum, kveikja á kertum og horfast í augu.....
....... en mér er spurn....hvenær ætla þessi ósköp að taka enda..... ég er ekki allveg að fíla þessa veðráttu....ekki svona lengi, ekki svona mikið.....
nei mætti ég þá frekar biðja um vor eins og Guðrún bloggvinkona mín er að lýsa í sínum pistli ........ en það hlýtur að koma hér á landi eins og annars staðar í heiminum.....kannski svona í júlíbyrjun....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
7.2.2008 | 09:44
Ófærð...... eða......
Er mætt í vinnuna..... og hér standa allir og glápa á mig eins og naut á nývirki...... það bjuggust nefninlega allir við að ég yrði veðurteppt í sveitasælunni ...en það var nú öðru nær..... það var vissulega aðeins þungfært niður á þjóðveg en Skodinn er flottur og kemst það sem hann ætlar sér..... á Bylgjunni héldu þau því blákalt fram að Hellisheiðin væri ófær og einnig Þrengslin.... það er soldið undarleg tilfinning að sitja í bíl á leið yfir Heiðina ásamt tugum annarra bíla í allveg þokkalegri færð og heyra það svo á öldum ljósvakans að leiðin sem maður er að keyra sé ófær !!!
....
Reyndar heyrði ég það svo núna á Rás 2 á búið sé að loka heiðinni enda aðeins farið að hvessa.... þannig að maður ætti kannski að vera auðmjúkur og rólegur fram eftir degi .... ég á nú eftir að komast austur aftur...
Ég á að vera mætt upp á Skaga um hádegi á fund...en ég held að ég slái honum á frest..... láta skynsemina ráða...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.2.2008 | 13:18
vetur,vetur, vetur.....
Lagði í´ann suður yfir heiðar laust eftir hádegi í dag..... var komin rétt sunnan við Þingborg þegar bíllinn fór að láta ófriðlega.... ég er ekki allveg að digga þennan vetur..... ef það eru ekki vetrarharðindi sem standa í vegi fyrir því að ég sinni erindum mínum í höfuðborginni .... nú þá er það bíllinn sem er með stæla..... sem sagt það kviknuðu þarna einhver ljós í mælaborðinu og ég hringdi í bóndann til að ráðfæra mig við hann....... "Hmmm Já "... sagði hann spekingslega..... " Þú verður eiginlega að snúa við...... það þarf að herða upp viftureimina....".....
.... akkurat.!!!!!.... bíllinn og bóndinn eru semsagt í einhverju platónisku sambandi og geta sagt til um líðan hvers annars í fleirri kílómetra fjarlægð frá hvor öðrum........
.... ég náttúrulega snéri við.... ég meina maður ber nú virðingu fyrir svona sambandi.... þegar ég kom heim að bæ....v ar bíllinn úrskurðaður óökuhæfur..takk fyrir......
Nú voru góð ráð dýr...... ég varð að komast í bæinn með einum eða öðrum hætti...... ef ekki í dag þá alla vega á morgun....... dóttir mín..... þessi sem ætlar að gefa mér ömmubarn í vor...
... stendur í flutningum í dag... og þar átti ég að gegna veigumiklu hlutverki...... þannig að ... eins og áður sagði.... ég verð að komast í bæinn....... ég,ásamt dóttur minni lögðumst í þankagang ....... og komumst að niðurstöðu...... sem er sú ....að nú eru feðgarnir....... minn fyrrverandi og einkasonurinn á leið austur fyrir fjall í björgunarleiðangri.......
Allt er gott sem endar vel....... og nú er ég búin að gera rjómabollurnar klárar, hella upp á kaffið og nú er beðið eftir feðgunum.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
2.2.2008 | 22:44
Hani, krummi, hundur, svín...
...eða því sem næst...... .... en það er eitt sem ég er allveg ákveðin í að gera núna allveg næstu daga..... en til þess þarf ég smá aðstoð... |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
1.2.2008 | 23:47
Er búin að....
......... standa í ströngu þessa vikuna..... seldi bæði og keypti fasteign Nú sit ég í fimbulkulda í sveitinni minni, frostið er í kringum 15 gráður....allveg ótrúlegt...... það brakar svona skemmtilega í snjónum þegar maður gengur .... svona hálfgert ískur..... veit ekki á hvað þetta hljóð minnir mig....... en eitthvað notalegt alla vegana....... og þannig hef ég hugsað mér að hafa helgina...... notalega og kósý........ |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.1.2008 | 20:13
Einn góður á mánudegi:))
Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000 kr. seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.
Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk því upp að konunni; "Góðan daginn væna mín", sagði hann, "hefur þú tekið eftir því að það fjúka 5000 kr seðlar úr pokanum þínum" ?
Konan stoppar og lítur bakvið sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna.
" Æ takk fyrir væni minn" stundi sú gamla "Ég ætti að drífa mig í að taka þá upp".
Þegar hún ætlar að beygja sig niður og taka upp seðlana,stöðvar lögregluþjónninn hana.
"Engan asa væna mín, hvernig stendur á því að þú ert með fullan poka af 5000 köllum.... varstu að ræna banka" ?
Gamla konan brosti... " Nei nei það gerði ég nú ekki..... en það vill þannig til að bak við garðinn minn er fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin mín, svo ég tók upp á því að standa þarna hjá með garðklippurnar og segja "5000 kall eða ég klippi hann af "...
"Jahá.... þetta er athyglisverð hugmynd ", sagði lögregluþjónninn hugsi... " En hvað ertu með í hinum pokanum " ???
...." það eru ekki allir sem borga"....... svaraði sú gamla og kímdi.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.1.2008 | 23:11
Samkynhneigður hani til sölu !!!
Þegar við Bóndinn fórum til Danmörku á dögunum fengum við gefins stórmerkilegan og skemmtilegan grip.... danska útungunarvél........ enda hafði það staðið til í nokkurn tíma að fjárfesta í slíkum grip ... svona aðallega til gamans... til að kanna hvort ekki gengi að fjölga aðeins í hænsnakofanum með hjálp tækninnar..... því ekki eru þær viljugar að liggja á blessaðar hænurnar.......
....
Milli jóla og nýárs var svo tekin ákvörðun um að vígja þennan forláta grip og var eggjunum raðað í vélina og rakinn stilltur..... allt samkvæmt leiðbeiningum........ nú tók við tími þar sem tæknin var látin klára það sem náttúran hafði byrjað á.... við biðum þolinmóð eftir því sem verða vildi.....fylgdumst náið með rakastiginu og að allt væri eins og það átti að vera......loks kom að því að við máttum fara að "kíkja" eggin....
... spenningurinn og eftirvæntingin var stór þegar við settumst fyrir framan útungunarvélina og tókum hvert eggið á fætur öðru og "kíktum" af mikilli nákvæmni........ en Adam var sko ekki einn í Paradís...... eða kanski var hann það..... í hænsnakofanum alla vegana..... því að í ljós kom nefninlega að það var ekki líf í einu einasta eggi...... því vil ég meina að Haninn sé ekki allur þar sem hann er séður........ ég held að hann sé allveg flaming gay !!!!!
..... ekki nema von að hænu greyin séu tregar við að liggja á......
.... þannig að núna stöndum við frammi fyrir því að skipta út Hanageyinu
... og fá sér nýjan sem er spenntur fyrir hænum...... og hana nú !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.1.2008 | 00:04
Veðurteppt á Selfossi !!!!
Vaknaði fyrir allar aldir eins og venjulega til að komast í vinnu í tæka tíð...... hafði ekki gert mér fylligega grein fyrir því hvernig veðrið var og hafði eiginlega hlakkað til að koma mér vel fyrir í farþegasætinu í bílnum og halda áfram að sofa.....
..... en mér kom ekki blundur á brá... það var þvílík þæfingsfærð að það veitti ekkert af að minnsta kosti tveimur bílstjórum.... en ég er með afbrigðum meðvirkur bílstjóri þegar samsettningin; Bóndinn + hálka + blindbilur... eiga í hlut
..... það er styðst frá því að segja að þegar upp á miðja heiði var komið tókum við þá skynsamlegu ákvörðun að snúa við.... þar sem ekki var þverfótað þarna uppi fyrir bílum sem sátu pikkfastir og komust hvorki lönd né strönd
..... þegar við vorum komin niður í miðja Kamba þá sjáum við snjóruðningsæki sem kom æðandi upp á móti okkur og vorum við snögg að taka ákvörðun um að snúa bílnum við og elta tryllitækið........ en en..... ekki verður kálið sopið þó í ausuna sé komið...
.. áttuðum okkur snögglega á því að við höfðum í hamaganginum, spenningnum og dramatíkinni gleymt að stoppa í Hveragerði og kaupa bensín á bílinn og sáum því þann kostinn vænstan að snúa við og dæla nokkrum lítrum á kaggann....... nú... þega við í þriðja sinnið ætluðum að rjúka yfir heiðina var búið að loka henni fyrir allri umferð........
.....Eftir að hafa setið drykklanga stund og drukkið góðan kaffisopa hjá bróður Bóndans var stefnan tekin heim á leið..... enda ekki útlit fyrir að heiðin yrði opnuð fyri bílaumferð í bráð........ á Selfossi gerðum við okkur grein fyrir því að ekkert vit væri í að fara lengra í austurátt þar sem ekkert var byrjað að ryðja og allt meira og minna kolófært.......... við dóluðum okkur á Selfossi í dágóðan tíma..... renndum hýru auga á hús Hrannar bloggvinkonu minnar........ en hún var að sjálfsögðu ekki heima kerlingin sú arna..... sjálfsagt upptekin í vinnunni í giftingarpilsinu fína með varalitinn sinn fræga á kafi í skemmtilegum tölum.....
..........
Við komumst fyrir rest, laust eftir hádegi til byggða á ný.......en þá í gegnum þrengslin....... á leiðinni sáum við allnokkra niðursnjóaða bíla í vegkantinum...... bílar sem höfðu verið skildir eftir vegna ófærðar fyrr um morguninn........ Nú sit ég heima í Kópavoginum.......nýkomin heim úr vinnunni búin að afgreiða fleirri hundruð blómavendi í tilefni bóndadags ..... sé rúmið mitt í hyllingum.......svo ég tali nú ekki um bókina sem ég er að lesa akkurat núna........ heheheh nokkuð góð.....bók um úkrainska traktora..... .....
Setti inn nokkrar stemningsmyndir frá deginum í dag.......
Góða nótt......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)