Góður dagur.......

Í dag fórum við, starfsfólk og sjúklingar  iðjuþjálfunar á Kleppi,  í dagsferð.......Grin..... Við smelltum okkur austur á bóginn og byrjuðum á því að skoða okkur um á Þingvöllum, ganga niður gjána..Smile.. sýna okkur á sjá aðra.......Frá Þingvöllum brunuðum við í Laugarás þar sem við fundum okkur huggulega flöt þar sem við sátum flötum beinum og borðuðum nestið okkar....Tounge.. mmmmm ... það jafnast ekkert á við "heimatilbúnar" samlokur út í guðsgrænni náttúrunni........ Eftir að hafa notið veitinganna og skoðað dýrin í Slakka tókum við stefnuna á Sólheima í Grímsnesi....Smile.. ég hef nú ekki oft komið á Sólheima...... en ég verð alltaf jafn heilluð af mannlífinu og starfinu sem þar er unnið...Heart... Nú stendur þar yfir listasýning þar sem ungur listamaður búsettur á staðnum sýnir afrakstur vinnu sinnar...... Myndirnar eru hver annar fallegri ..... svo ég tali nú ekki um keramikfígúrurnar....InLove.... ég hefði vel geta hugsað mér að kaupa eins og eina til tvær myndir ....... og hefði hiklaust gert það....... en þær voru allar seldar.......og sumar jafnvel tvisvar......Joyful........

En sem sagt dagurinn var allveg yndislegur og heim kom maður eins og veðurbarin skreið ...Pinch.. því þó að veðrið hafi verið gott.... sól og þokkalegur hiti..... þá blés Kári hraustlega líka.....Whistling

þingvellir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

gott hjá ykkur. alltaf gaman að rúlla austur. sérstaklega auðvitað í góðu veðri en þó aldrei betra en haustlitaferðirnar. snilld.

arnar valgeirsson, 19.6.2008 kl. 00:02

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Alveg endurlifi ég gamlar stundir í svona ferðum; það kallast víst minningar Þið hafið sannarlega valið góðan dag. Hvenær hættir þú á Kleppi? 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.6.2008 kl. 20:45

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég þekki Þingvelli eins og loðnari lófann á mér! Gef mig fram sem leiðsögumaður næst.... ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 19.6.2008 kl. 22:20

4 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Svona ferðir standa alltaf fyrir sínu....

Guðný Anna; Ég hætti á Kleppi um mánaðarmót ágúst/sept....

Hrönn; Ég hef samband við þig um leið og mér dettur í hug að skella mér til Þingvalla...

Fanney Björg Karlsdóttir, 19.6.2008 kl. 22:34

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Aaaassskið mitt (lesist=elskið mitt) - gott að vita. Ég kem varla á Klepp uppúr því. Hitti þig á Sogni, lesum þar blóm í haga ...

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.6.2008 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband