8.5.2008 | 11:25
Jæja, jæja
.... þá er komin tími til að líta aðeins upp og blogga pínulítið...... vikan í vinnunni hefur verið crasy....... og svo er ég náttúrulega Amma..... ef ske kynni að það hafi farið fram hjá einhverjum ......
Kúrekaballið á laugardaginn var allgjör snilld....... ég get svarið fyrir það að ég þjáðist af beinverkjum..... ásamt öðrum verkjum..... daginn eftir......og það var ekki eingöngu vegna þess magns af vökva sem fór inn fyrir mínar varir þetta kvöld... ... Ég dansaði eins og ég ætti lífið að leysa og er ég orðin hinn allramesti línudans sérfræðingur norðan Alpafjalla ... .. þó víðar væri leitað....Þarna var samankomið fullt af skemmtilegu fólki sem hafði það eitt að markmiði að skemmta sér og dansa rassinn úr buxunum.... allir klæddir að hætti tískulöggu villta vestursins..... gasalega smart..... Hestheimar koma til meða blása til leiks á ný seinna í sumar og þá ætla ég sko að hanga á húninum þegar þeir opna húsið.... til að tryggja það að ég missi ekki af neinu.....
Athugasemdir
Það hlýtur alltaf að vera gaman þar sem þú ert! Taka mig með næst...... ég skal sitja á gólfinu og gráta.....
....af hlátri
Hrönn Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 11:29
Þú meinar: fyrir austan fjall! Ha? ..... er það ekki?
Marinó Már Marinósson, 8.5.2008 kl. 19:45
Hæ elsku Fanney, veit ekki hvort ég var búin að óska þér til hamingju... En INNILEGAR HAMINGJUÓSKIR með litlu ömmustelpuna Þetta fer þér ekkert smá vel !! Vonandi sé ég þig sem fyrst, knús Þórdís
Þórdís Friðbergsdóttir (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 11:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.