11.4.2008 | 23:16
Megrun fyrir karlmenn
Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim "misstu 5 kg á 5 dögum"pakkann.
Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér,þá máttu eiga mig".
Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni.Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp.Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist
í hvert skipti.Á fimmta degi vigtar félaginn sig,og viti menn,hann hefur misst 5 kg.
Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá þeim "misstu 10kg á 5 dögum" pakkann.
Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð.Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni.Hún er auðvitað í fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki.Næstu fjóra daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form.Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg.
Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar "misstu 25 kg á 7 dögum" pakkann."Ertu alveg viss?"spyr sölumaðurinn " Þetta er erfiðasta prógrammið okkar"
"Ekki spurning" svarar félaginn, "mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár".
Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór,helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm.Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur "Ef ég næ þér, er rassinn á þér MINN!"Félaginn missti 32 kg í þeirri viku.
Athugasemdir
Marta B Helgadóttir, 12.4.2008 kl. 09:08
Sæl Fanney. Nú er bókaspjallið hafið á síðunni minni
Marta B Helgadóttir, 13.4.2008 kl. 10:26
Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 13:09
Góð.
Marinó Már Marinósson, 14.4.2008 kl. 20:21
Ég veit nú um einn Bónda sem missti ábyggilega fimm kíló bara við að hlaupa á eftir þér í Bónus í dag. Ég - hins vegar er fastheldin á mín og missti þess vegna af þér.....
Knús á þig kjéddling
Hrönn Sigurðardóttir, 14.4.2008 kl. 22:12
Já Hrönn....ahahahah.. engin smá fart á mínum..... við eigum víst að vera að spara og hann fær svona angist þegar ég slepp laus með budduna í nágrenni við verslanir.......Hann tók jú þátt í að pakka fötunum mínum í nýafstöðnum flutningum........ og nú talar hann um að opna tískuvöruverslun hér í Ásahreppi....lagerinn er að hans sögn á við meðalverslun í Kringlunni.....iss hann veit ekkert um hvað hann er að tala....
Fanney Björg Karlsdóttir, 14.4.2008 kl. 23:07
Góðan daginn sætust!
Langar þig í fleiri hænuunga? Ein sem ég þekki sem er með hænuunga til sölu fæddust um páska. Sannkallaðir páskaungar............ Hún bað mig að spyrja þig.....
Heyrumst - og hurru ef þú átt netfang þá máttu gjarnan senda mér það. Stundum dettur mér svo margt dónalegt í hug og vil þá síður að alþjóð geti lesið. Þarf að vera svona meira for your eyes only......
Hrönn Sigurðardóttir, 16.4.2008 kl. 10:29
já......
....það er kannski einfaldara fyrir þig að senda mér póst ef þú veist mitt netfang....
hronns@nett.is
Hrönn Sigurðardóttir, 16.4.2008 kl. 11:00
Nei Hrönnslan mín mig vantar ekki fleirri unga.... hjá okkur fæddust 7 ungar á laugardaginn...gasalega sætir og allt það....en ég hef varla pláss fyrir fleirri...... ég er komin í bullandi samkeppni við búið á Ásmundarstöðum í Holtum........
Ég sendi þér netfangið mitt....... hlakka til að fá svona "dónapóst".........
Fanney Björg Karlsdóttir, 16.4.2008 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.