5.4.2008 | 10:45
hugleiðing um kassa....
Er komin vel á veg með að sortera innbúið í Kópavogi....... pakka, henda, gefa, geyma..... allveg merkilegt hvað maður nennir að safna að sér að dóti.... og hvað maður nennir að geyma dót sem maður er löngu hættur að nota og löngu hættur að hafa ánægju af....... í geymslunni minni eru nokkrir kassar....sem bara eru þarna... eins og af gömlum vana..... ég hef ekki hugmynd um hvað er í þessum kössum.... enda hef ég ekki kíkt í þá í mörg herrans ár... en ég er allveg viss um það að ef ég myndi henda þeim á Sorpu án þess að kíkja ofan í þá....... myndi ég ekki geta sofið af áhyggjum af því .... hverju ég hafi verið að henda........ en ef einhver kæmi og tæki kassana..... u know... svona í leyfisleysi þá myndi ég ekki hafa hugmynd um það og þar af leiðandi ekki eiga neina andvökunætur af áhyggjum yfir því hverju ég hafi verið að tapa....... svei mér þá er ég er ekki á góðri leið með að tapa geðheilsunni á þessum flutningum...... ég læt Bóndann henda árans kössunum.....og hana nú... ... og talandi um Hana..... nú sitja þeir félagarnir.... sá samkynhneigði og töffararnir tveir.....og gala hver í kapp við annan ...... eru sennilega í einni pissukepnninni enn.....en mér finnst þetta ósköp notalegt eitthvað...... hér sit ég með gott kaffi, bulla á tölvuna, hlusta á hanana í öskurkeppni, Bóndinn á harðaspani úti með hjólbörurnar fullar af hestaskít, kettirnir mala í notalegheitum í sófanum........ Oh what a wonderful world.........
|
Athugasemdir
Ég er algerlega með þér þarna. Sé þig með kassana, alveg að missa vitið, en þú hugsar bara um hanana þína sætu, kallinn og kisurnar, og kaffið bíður í bollanum. Ergo: Þetta er allt þess virði. Ég er rosalega hamingjusöm með þig, kelli mín, og þá stefnu sem líf þitt virðist vera að taka!!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 5.4.2008 kl. 12:15
Takk Guðný mín....
Fanney Björg Karlsdóttir, 5.4.2008 kl. 14:20
Frábær færsla.
....henda bara draslinu, það er alltof mikið sem maður dregur á eftir sér milli staða.
Gangi þér vel.
Marta B Helgadóttir, 6.4.2008 kl. 11:46
Litlir kassar, á lækjarbakka, litlir kassar úr dingalingaling.....
Elska þig þú kona með stóra hjartað - komdu til mín þegar þú átt leið
Hrönn Sigurðardóttir, 6.4.2008 kl. 19:41
Flott "logo" á síðunni þinni. Þú hljómar virkilega notalega með öll dýrin og samkynhneigða hanann líka, nálægt þér.
Anna Einarsdóttir, 6.4.2008 kl. 23:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.