12.3.2008 | 09:47
Úr tengslum....
Hef verið úr tengslum við netheima síðan á laugardag vegna þess að nettengingin okkar í sveitinni er í verkfalli. Þetta er dulítið einkennileg tilfinning, svona eins og að vera með síma utan þjónustusvæðis ... hef líka verið undarlega eirðarlaus bæði mánudags og þriðjudagskvöld þar sem ég hef ekki komist í heimskókn í bloggheima...... þetta vekur hjá mér .... já eiginlega vekur þetta hjá mér ugg...... er ég að verða bloggfíkill eða er þetta óeðlileg forvitni.... um hagi ykkar hinna..... hvað á daga ykkar hefur drifið ....... eða kanski er þetta plein umhyggjusemi....... já ...... ég ætla að kalla þetta umhyggjusemi...... það hljómar betur...... Ég hef að sjálfsögðu kíkt inn á hlaupum í vinnutölvunni....... en það verður nú að segjast að það gefst nú ekkert allt of mikill tími til að blogga í vinnunni...... núna er ég í vinnunni..... að blogga....... en sá sem átti að koma í viðtal til mín núna boðaði forföll.....og þá nýtir maður tímann......til nytsamlegra hluta......
Hafið það sem allra best í dag........
Athugasemdir
Vitaskuld er þetta eingöngu umhyggjusemi
Ég hef einmitt saknað svo til þín....
Hrönn Sigurðardóttir, 12.3.2008 kl. 11:59
Alveg skil ég þessa tilfinningu, eða vanmátt að getað ekki kíkt í bloggið þegar það hentar manni
Unnur R. H., 16.3.2008 kl. 10:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.