10.11.2007 | 13:08
Fékk....
Vikuna í hús í vikunni.... renndi í gegnum hana svona af gömlum vana..... margt athyglisvert sem þar fyrir augum bar...... en það sem fékk hjarta mitt til að slá hraðar... voru krossgátuverðlaun Vikunnar í þetta skipti ....algjörlega lífsnauðsynlegt "tæki" fyrir hverja mey sem komin er yfir ákveðin aldur.... skil bara ekkert í því hverning mannkynið hefur komist af án þessa tækis í öll þessi ár.... tækið sem um er rætt er "Hrukkustraujárn"..... ég endurtek "Hrukkustraujárn"...þetta tæki bara verð ég að eignast..... ekki það að ég sé svona asskoti hrukkót en ekki er ráð nema í tíma sé tekið...... þannig að nú djöflast ég áfram með krossgátuna.... en hún er bara nokkuð strembin þessa vikuna.... en ég skal ég skal
Athugasemdir
Hrukkustraujárn!!!! Hættu strax í þessari krossgátu. Við höfum ekkert að gera við hrukkustraujárn. Ekki degi eldri en 25 - í útliti alltsvo
Hrönn Sigurðardóttir, 10.11.2007 kl. 23:54
iss. það er bara verið að plata þig. þegar þú ert komin með járnið þarftu hvortsemer að kaupa hrukkustraujárnsborð. og það er sko ekki ókeypis.
en þú setur þetta bara á jólagjafalistann.
og gefur kallinum "hvernig þú gerir konuna þína hamingjusama" eftir þorgrím. hún er á tilboði núna.....
arnar valgeirsson, 12.11.2007 kl. 21:56
Fólk er alltof upptekið af þessum hrukkupælingum. Ég er farin að sjá svo illa (einn kostur við ellina skiluru ) að ég sé ekki hrukkurnar
Marta B Helgadóttir, 12.11.2007 kl. 22:13
ég er allveg alsæl með mínar hrukkur enda eru þær merki þess sem á undan er gengið ..og maður er nú hokin af reynslu ...... ég er að sjálfsögðu að tala um þessar krúttlegu hrukkur í kringum augum sem eru ör eftir allan hláturinn ..... og Arnar ég er að sjálfsögðu búin að kaupa nokkur eintök af bókinni hans Þráins og gefa bóndanum....... hvert sem hann lítur þar liggur bókin...þannig að þú getur rétt ímyndað þér hvort það sé ekki bullandin hamingja á minni núna...
Fanney Björg Karlsdóttir, 13.11.2007 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.