27.9.2007 | 09:29
Hver var hann?
Þrjár sannanir fyrir því að Jesú var mexíkani.
- Hann hét Jesú
- Hann talaði tvö tungumál
- Hann hafði aldrei frið fyrir yfirvöldum
Sömuleiðis eru líkur á því að Jesú hafi verið svertingi.
- Hann kallaði alla "bræður sína"
- Hann var hrifinn af gospel
- Hann fékk aldrei sanngjarna málsmeðferð hjá yfirvöldum
En það gæti líka vel verið að hann hafi verið Gyðingur.
- Hann fetaði í fótspor föður síns
- Hann bjó heima þangað til að hann var 33 ára
- Hann notaði ólífuoliu
Þrjár sannanir sem sýna sterklega að Jesú hefði vel getað verið
ítalskur.
- Hann baðaði út höndunum þegar hann talaði
- Hann drakk vín með hverri máltíð
- Hann var viss um að mamma sín væri hrein mey og mamma hans var viss
um það að hann væri Guð.
Þrír möguleikar sem sýna að hann hefði getað verið frá Kaliforníu.
- Hann lét aldrei klippa sig
- Hann gekk berfættur
- Hann lagði grunn að nýrri trú
En það er þó mjög líklegt að hann hafi verið Íri.
- Hann giftist aldrei
- Hann elskaði að vera úti í náttúrunni
Hann var sífellt að segja sögur
EN....það líklegasta er að Jesú hafi verið KONA.
- Hann var neyddur til að fæða fjölda manns án fyrirvara þótt ekki
væri nokkur matur til !!!!!!
- Hann reyndi að láta rödd sína heyrast meðal fjölda karla sem ekki
föttuðu baun.
- Þrátt fyrir að hann væri dáinn, varð hann að rísa upp aftur því það
var meira sem hann átti eftir að gera !!!!!!!!!!
Þess vegna skaltu senda þetta til allra kvenna svo þær skilji að þær
eru enn guðdómlegri en þær héldu ....
Athugasemdir
Þessi er sígildur.....
.... en Fanney!! HVAÐ ertu að prjóna????
knús á þig
Hrönn Sigurðardóttir, 27.9.2007 kl. 20:46
Hrönn... Ég er að prjóna allveg afskaplega fallegan og spennandi "kriss-kross" trefil.........hvorki meira né minna.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 27.9.2007 kl. 22:00
Skemmtilegar pælingar. Hvað gæti ýtt stoðum undir að hann hafi verið Íslendingur? Koma so.....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.9.2007 kl. 22:40
Tja.... ég náttúrulega rúllaði þessari krossgátu upp.... og prjóna svo í dauða tímanum.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 27.9.2007 kl. 22:41
Guðný mín... hann var náttúrulega alltaf soldið veikur fyrir sjávarútvegnum.... eða var það ekki....
Fanney Björg Karlsdóttir, 27.9.2007 kl. 22:42
Fanney vilt þú vera með í sunnudagsspjalli 30.sept hjá Leshringnum á blogginu?
Marta B Helgadóttir, 27.9.2007 kl. 22:49
Komin með þetta: Vísbending um að Jesú hafi verið Íslendingur: Hann notaði nýjustu gerð af farsíma.........
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.9.2007 kl. 22:52
Marta smarta... takk fyrir að bjóða mér að vera með... og víst væri gaman að taka þátt í spjallinu. Ég set kraft á Krísuvíkina og klára bókina og ef það tekst þá tek ég gjarnan þátt í spjallinu.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 27.9.2007 kl. 23:01
Góð Guðný....... og sennilega er þetta rétt hjá þér..... hann hefur sennilega verið með feitan yfirdrátt líka...
Fanney Björg Karlsdóttir, 27.9.2007 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.