12.8.2007 | 16:06
Er í óðaönn...
... við að klára súkkulaðilager heimilisins þannig átakið og lífstílsbreytingin geti hafist af fullri alvöru
Annars fékk ég mér góðan göngutúr í gær , ég gekk niður að veg og svo náttúrulega til baka aftur..... þetta eru allveg 6 km..... en hver er svo sem að telja.... Ég ætlaði mér ekkert að fara svona langt en þetta var eitthvað svo notalegt þannig að maður náði að hreinsa hugann af neikvæðum og leiðinlegum hugsunum....mmmm allveg yndislegt.
Í dag er veðrið með albesta móti, sól og hiti. Við brugðum undir okkur betri fætinum, ég, bóndinn og tíkin Hekla, við skelltum okkur í göngutúr upp í heiði hér rétt fyrir ofan bæinn.... óttaleg sveitarómantík.... hljómar eins og úr sögu eftir Guðrúnu frá Lundi
Á leiðinni er smá lækjarspræna og því ekki úr vegi að nota tækifærið og kenna Heklu að vaða....í hennar augum lítur þetta út eins og stórfljót og sú stutta ætlar gjörsamlega að rifna úr monti þegar hún kemst óhult yfir.......
Athugasemdir
Bæði sætar OG duglegar......
Ekki oft sem þetta tvennt á samleið
Rosalega hefur hún stækkað - Hekla alltsvo -
Knús
Hrönn Sigurðardóttir, 12.8.2007 kl. 16:17
Síðasti dagur fyrir lífsstílsbreytingar er alltaf dásamlegur. T.d. hljómar hann stundum svona hjá mér: Útsof. Tvær könnur af kaffi (hitakönnur) og heilt franskbrauð með sultu. Kaffihúsaferð með kakói (með rjóma) og stórri sneið af Dajm-tertu. Brasað kjöt í kvöldmat, ís og súkkulaði með kaffinu á eftir. Oh, hvílíkir dagar.
Þið Hekla eruð ógnarlega sætar.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.8.2007 kl. 22:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.