27.7.2007 | 10:38
einkasynir.....
Fyrsti dagur í seinni hluta sumarfrís...mmmmm... er nokkuð yndislegra Vaknaði fyrir allar aldir og skutlaði einkasyninum í vinnuna .. já...akkurat ég vaknaði og skutlaði honum í vinnuna....
mér er til efs að ég hefði látið mér detta í hug að vakna á fyrsta sumarfrísdeginum mínum til að skutla dætrum mínum, yndislegu, í vinnuna..... nei... sjálfsagt hefði ég rekið upp risastór undrunar, og svona "er ekki i lagi heima hjá þér" augu ef þeim hefði svo mikið sem leitt hugann að því að ég myndi rífa mig á lappir eldsnemma til að skutla hálffullorðnu fólki í vinnu... og það á mínum fyrsta sumarfríisdegi..... en nú er það bara þannig að einkasynir eru einkasynir og þeir hafa nú ymislegt sem þeir geta borið við, sér til varnaðar um lært hjálparleysi.... og þar ber fyrst og síðast að nefna þá staðreynd að þeir er karlmenn................
Nei, nei.. í fúlustu alvöru.. þá er þessi færsla svona hálfgerður varnarmekanismi, þar sem ég veit upp á mig sökina varðandi dekur við einkasoninn.... og þær skjóta föstum skotum... dæturnar yndislegu.. því eins og þær segja ; " Hvenær hefði þér dottið í hug að leita okkur uppi til að lána okkur bílinn" ? Er ekki móðurhlutverkið yndislegt...
Athugasemdir
æj....
....dúllan, það er ekki hægt að ætlast til þess að þeir labbi..........Svo geta þeir líka lúrt aaaaaðeins lengur ef þeim er skutlað
Hrönn Sigurðardóttir, 27.7.2007 kl. 11:54
akkurat Hrönn... ég meina það var akkurat þetta sem ég hugsaði...... ég þarf ekkert að lúra svona á morgnana..... hvað þá stelpurnar
Fanney Björg Karlsdóttir, 27.7.2007 kl. 12:34
....en hann er nú að stækka.....
híhíhíhíhíhíhíhí
Hrönn Sigurðardóttir, 27.7.2007 kl. 12:54
Ó, hvað ég skil þig vel Fanney, verandi móðir stelpu og stráks! Þetta er öfugsnúið en skiljanlegt....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 28.7.2007 kl. 20:39
dísús.....
Madur er nú samt hættur ad kippa sér upp vid dekrid hjá Kalla...
;o)
Knús og takk fyrir fallegur færsluna um mig med skólavistina ;o)
Matthildur (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 14:13
já Matthildur mín maður kippir sér nú ekki upp yfir svona smámunum...
Fanney Björg Karlsdóttir, 1.8.2007 kl. 00:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.