4.7.2007 | 00:36
Sumar og sól....
Svei mér ef sumarið ætlar ekki bara að vera svona alvöru..... mér finnst þetta allveg yndislegt..sól og hiti,notalegheit og allir (tja... flestir) með bros á vör. Hann sletti meira að segja aðeins úr sér, allveg eftir pöntun, hér í Ásahreppi í kvöld.... svo gott fyrir blómin og trén .
Vorum að velja okkur hvolp fundum allveg yndislega gula Labrador tík í Hafnarfirði (hvar annars staðar.....) Við fáum hana heim í byrjun ágúst og getum varla beðið, þannig að seinni hluti sumarfrísins fer í hundaaðlögun......
Athugasemdir
Frábært! Til hamingju með hvolpinn
Gott að kettirnir voru komnir á svæðið. Mér skilst að það sé einfaldari aðlögun en hin.
lofjú
Hrönn Sigurðardóttir, 4.7.2007 kl. 14:39
takk hony...lofjú tú
Fanney Björg Karlsdóttir, 4.7.2007 kl. 14:53
Til hamingju með hvutta. Vonandi verður hann hlýðinn og heimahagur. Ætlarðu ekkert að svara kommenti mínu við síðustu færslu, Ásahreppsdúlluþjálfinn minn?
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 4.7.2007 kl. 23:47
ahahaha...elsku Guðný mín... ég er enn svo standandi hissa að okkur skyldi takast að djamma án næturdrottningarinnar að ég á bara ekki orð í eigu minni svo var ég líka að rifja upp þegar við hittumst í Ara í Ögri hér um árið á "blóðþynningarfundi" ykkar hjúkrunarfræðinga mikið lifandi skelfingar ósköp var gaman í þá daga.... allveg spurning um að rifja svona lagað upp og endurtaka leikinn hvað finns þér
Fanney Björg Karlsdóttir, 5.7.2007 kl. 00:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.