Samkynhneigður hani til sölu !!!

Þegar við Bóndinn fórum til Danmörku á dögunum fengum við gefins stórmerkilegan og skemmtilegan grip.... danska útungunarvél....Smile.... enda hafði það staðið til í nokkurn tíma að fjárfesta í slíkum grip ... svona aðallega til gamans... til að kanna hvort ekki gengi að fjölga aðeins í hænsnakofanum með hjálp tækninnar..... því ekki eru þær viljugar að liggja á blessaðar hænurnar.......W00t....

Milli jóla og nýárs var svo tekin ákvörðun um að vígja þennan forláta grip og var eggjunum raðað í vélina og rakinn stilltur..... allt samkvæmt leiðbeiningum........ nú tók við tími þar sem tæknin var látin klára það sem náttúran hafði byrjað á..Joyful.. við biðum þolinmóð eftir því sem verða vildi.....fylgdumst náið með rakastiginu og að allt væri eins og það átti að vera......loks kom að því að við máttum fara að "kíkja" eggin....Sideways... spenningurinn og eftirvæntingin var stór þegar við settumst fyrir framan útungunarvélina og tókum hvert eggið á fætur öðru og "kíktum" af mikilli nákvæmni........ en Adam var sko ekki einn í Paradís...... eða kanski var hann það..... í hænsnakofanum alla vegana..... því að í ljós kom nefninlega að það var ekki líf í einu einasta eggi...... því vil ég meina að Haninn sé ekki allur þar sem hann er séður........ ég held að hann sé allveg flaming gay !!!!!Pinch W00t..... ekki nema von að hænu greyin séu tregar við að liggja á......FootinMouth.... þannig að núna stöndum við frammi fyrir því að skipta út Hanageyinu LoL... og fá sér nýjan sem er spenntur fyrir hænum...... og hana nú !!! Tounge

Haninn eini sanni Stoltar Íslenskar hænur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó Már Marinósson

  Hver laug þessum hana uppá hænurnar?    Kannski er hann vanur einslitum hænum.    Merktu bara hænsnakofan "Hér búa Hanar"  

Marinó Már Marinósson, 27.1.2008 kl. 23:42

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þótt ég rembist eins og rjúpan við staurinn..... eða hænan í hænsnakofanum, get ég ómögulega fundið not fyrir samkynhneigðan hana.    

Anna Einarsdóttir, 28.1.2008 kl. 00:09

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú gætir látið stoppa hann upp! Þetta er merkisgripur

Hrönn Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 07:44

4 Smámynd: Guðrún Árnadóttir

Sammála Hrönn - Þetta er mikill merkisgripur !

  

Guðrún Árnadóttir, 28.1.2008 kl. 12:33

5 Smámynd: Ragnheiður

Anna leynir á sér, hún er búin að finna not fyrir hanaskömmina hehe...

Ragnheiður , 29.1.2008 kl. 18:21

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Er þetta alveg örugglega hani? Skiptir svosem engu. Samkynhneigð hæna gerir ekkert gagn heldur.

Halldór Egill Guðnason, 30.1.2008 kl. 14:24

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Og sauðstu hann Henry?

Coq au vin að hætti hússins?

Hrönn Sigurðardóttir, 30.1.2008 kl. 21:47

8 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Takk kæru vinir fyrir allar góðar ábendingar varðandi hanaómyndina...... sennilega fær hann að víkja fyrir öðrum ...yngri... ferskari og kynvísari hana.... en að öllum líkindum verður kvikindið stoppað upp...öðrum öfugum hönum víti til varnaðar

Fanney Björg Karlsdóttir, 30.1.2008 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband